..::glíngló - allt sem þú lest er lygi::..

22.02.2009 20:22:07 / eyglorut

...summertime and the livin´ is easy...

Fyrir innan við 4000 kr geta tvær stelpur tekið taxa ca. 25 km út fyrir Lima, borgað sig inn á það sem við héldum að væri reif, drukkið vodka í redbull og bjór, tekið tvær rútur aftur inní borgina og loks komið við í supermarkaðnum til að kaupa kók og brauð! Ekki slæmt það. Ég get ekki ímyndað mér að það fáist nú mikið fyrir 4000 kallinn heima þessa dagana...

Við fórum sem sagt með Amöndu (þýskri vinkonu okkar), þremur öðrum þýskum stelpum, Claudiu og auðvitað deitinu hennar út í gær. Claudia fer aldrei neitt deit-laus. Hún ætlaði loksins að fara með okkur á reif við ströndina fyrir sunnan Lima. Smá útskýring fyrst.

Á sumrin (jan-mar) lifnar suðurströndin heldur betur við. Það þykir víst ekki mjög töff að fara á ströndina inní borginni þannig um helgar flykkjast allir suðurfyrir. Þetta er mjög sérstakt dæmi. Það býr í raun enginn þarna, heldur eru þetta BARA diskó, reif, barir, veitingastaðir og hostel og þarna er brjálað stuð í þrjá mánuði á ári. Restina af árinu er þetta bara lokað.

Allavega, við vorum á leiðinni á eitthvað summer-party reif en hvorki Claudia né leigubílstjórinn vissu hvar það var nákvæmlega svo við enduðum ekki á réttum stað. Ég er eiginlega bara fegin því ég er ekki viss um að ég hefði höndlað reif til fimm um nóttina (rúturnar byrja ekki að ganga til baka fyrr en þá). Við enduðum samt í mjög góðu red bull partýi sem var "battle" á milli tveggja hljómsveita. Jájá maður er bara heví nett á því á battle....Ég var líka alveg að fíla þetta. Sitt hvoru megin við dansgólfið var svið og böndin skiptust á að spila. Þetta voru líka alvöru hljómsveitir, með lúðra, í búningum með dans og læti! Usss ég dansaði sko frá mér allt vit í gær.

Annars er bara allt að gerast. Við eigum vona á ultra-mega-túrbó góðri heimsókn eftir 1-2 vikur. Atli, Gunni og Sigga ætla að koma og gista hjá okkur í ca. viku. Ég hugsa að við förum með þau til Huacachina. Það er alveg magnaður staður í miðri eyðimörkinni. Googliði þetta. Kannski gerum við eitthvað meira, við eigum eftir að plana þetta. Það verður samt sennilega þannig að þau verða ennþá hér hjá okkur þegar vinnan okkar er að fara að taka þátt í skrúðgöngu fyrir sunnan. Sjöunda mars er einhver mega skrúðganga einhversstaðar fyrir sunnan Lima. Fullt af bæjum taka víst þátt og Induquimica ætlar að vera með rútu og taka þátt. Okkur langar náttúrulega mjög að vera með en sennilega verðum við ekki heima :(

Svo höfum við fengið það staðfest að Hanna, Stefanía og Simmi eru að koma í heimsókn í júní og það er vægast sagt mikill spenningur fyrir því. Nú þurfa þau bara að koma með nákvæma dagsetningu og planleggingar geti hafist af alvöru!!!! Mikil gleði á heimilinu þess dagana :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.02.2009 19:17:22 / eyglorut

...I never wanted to be the one...

oooooo mér hefur tekist að eyðileggja fyrstu flíkina í vinnunni, af sennilega nokkrum ef ég þekki klaufalegu mig rétt. Einhver auli var búinn að vera að vinna með skærbleikt íbúprófen jarðaberjasaft og tókst að soga heilan helling upp í pípettubelginn. Svo kom ég í sakleysi mínu og ætlaði að nota hann, tæmdi loftið úr honum og ég fékk þessa skemmtilega skærbleiku skvettu yfir mig. Þannig að nú er hvíta skyrtan mín, sem ég var loksins farin að passa í aftur, ónýt!

Fyrst ég er farin að tala um vinnuna þá finnst mér alveg við hæfi að nefna það að um daginn byrjaði ný stelpa hjá okkur. Rosa fín stelpa, voða nice og allt eeeeeen hún er með stærsta, ljótasta og loðnasta fæðingablett á kinninni sem ég hef séð! Þetta er rosalegt krakkar, við erum að tala um að bletturinn er sennilega með sitt eigið póstnúmer. Svo situr hún alltaf með okkur í hádeginu og við Eydís getum ekki annað en starað á blettinn allan tímann. Jaahh við skiptumst á að stara á blettinn eða yfirvaraskeggið á henni. Já hún er sko er með vænari hýjung en flestir 15 ára strákar og það er ekkert djók. Ég veit ekki alveg hvað hún sér í speglingum þessi elska en það að taka af sér yfirvarskeggið og plokka þennan fæðingablett myndi gera miiiiikið fyrir hana. Fín stelpa samt ;)

Svo er önnur helvíti skemmtileg kona sem situr alltaf á næsta borði við okkur í hádeginu, held að hún vinni á skrifstofunni. Hún er rosalega litaglöð og hefur tekið það á sig að gleðja alla í fyrirtækinu með litagleði sinni. Alla daga vikunnar mætir hún annað hvort með skærfjólubláan eða skærgrænan augnskugga og það ekkert í litlu magni neitt. Ég hef ekki sett svona mikinn augnskugga á mig um ævina....samanlagt!!! Þið haldið að ég sé að ýkja en ég sver að svo er ekki. Þurfum eiginlega að ná mynd af augnskugganum og fæðingablettinum saman svo þið trúið mér.

Annars er ég að fara í partý í kvöld, hvað annað er nýtt....hvað get ég sagt, við erum bara svo skemmtilegar við Eydís, það eru allir æstir í okkur hérna!

» 5 hafa sagt sína skoðun

11.02.2009 00:53:51 / eyglorut

...papa don´t preach...

Pabbi gamli á afmæli í dag svo ég segi feliz cumpleaños papá! Kallinn er nú kominn hættulega nálægt fimmta tugnum...Ég læt eina gamla góða mynd fylgja með sem ég fann á facebook um daginn. Á myndinni má sjá hversu athafnasöm ég varð strax í æsku. Þarna eru líka Egill og pabbi og þá var pabbi sko ljóshærður og spengilegur, nú er hann ekki eins mikið....ljóshærður :)



Annars er bara allt í gúddí hjá okkur sambýliskonunum. Lífið gengur sinn vana gang, við vinnum eins og skepnur á virkum dögum og djömmum svo eins og enginn sé morgundagurinn um helgar.

Fengum loksins netið á sunnudaginn. Erum sem sagt komnar með stöðuga nettengingu og þá er eins gott að allir séu með skype í tölvunni sinni og helst myndavél líka. Ég er þegar búin að eiga tvö skype-deit og þetta er algjör snilld.

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2009 21:52:35 / eyglorut

...don’t nobody know my troubles but god...

Jæja þá hefur maður fengið það staðfest og skjalfest hér í Perú að ég er heilbrigð. Þurftum að fara í alherjar læknisskoðun fyrir vinnuna og í gær, það var mjög athyglisverð reynsla. Það var byrjað á því að taka úr okkur blóð, sem er mjög eðlilegt, en ég veit ekki hvers konar niðurstöður þetta fólk getur fengið innan klukkutíma. Þá fórum við í tannskoðun sem fólst í því að einhver gaur taldi í mér tennurnar. Að lokum fór ég í eitt stysta og athyglisverðasta læknaviðtal sem ég hef farið í. Læknirinn spurði mig hvernig ég hefði það, útí vinnuna mína, hvort og reykti og drykki og hvort ég væri búin að vera að hósta mikið undanfarið. Hann hafði engan áhuga að vita hvort ég tæki einhver lyf, mæla í mér blóðþrýstinginn eða því um líkt. Síðan fékk ég þetta fína skírteini uppá það að ég telst heilbrigð....enda með allar tennurnar og svona....En þetta fór allt saman fram á spænsku og við Eydís vorum mjög stoltar af okkur að komast í gegnum þetta alveg sjálfar.

Fórum svo að kvarta útaf netinu sem aldrei hefur komið. Það gekk nú ekki betur en svo að við gáfum skít í þetta fyritæki og ætlum að leita eitthvað annað. Það kom sem sagt í ljós að pakkadíllinn sem við vorum búnar að gera við fyrirtækið fyrir 6 vikum síðan er ekki í boði næsta mánuðinn eða svo og í stað þess að hringja og segja okkur það þá bara komu cable-gæjarnir aldrei. Þannig að ennþá lengri bið eftir stöðugri tenginu....

Annars er ég bara hot stöff þessa dagana....

» 6 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010
RSS tengill
Heimsóknir
Í dag:  23  Alls: 48759
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 93 dögum
kem ég heim :)